Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

Messi fær tæplega 6 milljarða kr. á ári

 

Þessar upphæðir fylla mig ógeði varðandi launamál stráka sem hafa gaman að því að leika sér i fótbolta. Þess skal getið að Messi er 22 ára þó það skipti ekki öllu í þessu rugli.


mbl.is Messi fær tæplega 6 milljarða kr. á ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gefa egg úr konu í happdrætti

Ég segi nú bara tímanna tákn, þarf að segja meira?


mbl.is Gefa egg úr konu í happdrætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hollenskir sjúklingar krefja hjúkrunarfræðinga um kynlífsþjónustu!!!

 

Hollensk hjúkrunarkona hefur leitað til stéttarfélags síns til að verja sig eftir að hún hafði neitað að veita hreyfihömluðum sjúklingi kynlífsþjónustu. Stéttarfélagið berst nú fyrir því að kynlífsþjónusta verði ekki ein af daglegum skyldustörfum hjúkrunarfólks. Sjúklingurinn brást hinn versti við þegar hjúkrunarkonan neitaði og reyndi að fá hana rekna úr starfi. Fram kemur í greininni að aðrar hjúkrunarkonur sem höfðu sinnt þessum sjúklingi höfðu beygt sig og látið þjónustuna að hendi við þennan sjúkling. Tímanna tákn og heimur versnandi fer.

 http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/her-dreg-eg-morkin-hollenskir-hjukrunarfraedingar-neita-ad-veita-sjuklingum-kynlifsthjonustu


Um 40.000 vændiskonur væntalegar á HM í S-Afríku.

Gert er ráð fyrir því að um 40.000 vændiskonur séu að undirbúa komu sína til S-Afríku á HM í sumar. Þær verða viðbót við þær sem fyrir eru. Menn haf nokkrar áhyggjur af því að sumar hverjar verði undir lögaldri og jafnvel börn. Það sem stýrir ferðinni er að það verður nóg af peningum í kringum HM í sumar og hafa stjórnvöld einna helst áhyggjur af því að ungar stúlkur verði hvattar til að stunda vændi út af græðgi í peninga.

 http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/vaxandi-ahyggjur-motshaldara-hm-i-sudur-afriku-allt-ad-40.000-vaendiskonur-vaentanlegar


Unglingsstrákar koma fram við kærustur sem kynlífsleikföng (Pressan)

Klámvæðing áhyggjuefni. Unglingsstrákar sem horfa á klám í margar klukkustundir á internetinu í hverri viku koma fram við kærustur sínar eins og kynlífsleikföng. Kynlíf á netinu er of aðgengilegt

 http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/klamvaeding-ahyggjuefni-unglingsstrakar-koma-fram-vid-kaerustur-sem-kynlifsleikfong


Netfíklar svelta barn sitt til dauða.

Hjón í Suður-Kóreu voru handtekin í gær en þau eru grunuð um að hafa svelt dóttur sína til bana á meðan þau léku sér í tölvuleikjum. Maðurinn, sem er 41 árs, og konan, 25 ára, kynntust á netinu árið 2008. Undanfarið hafa birst fréttir af netfíklum í Suður-Kóreu. Til að mynda lést 32 ára karlmaður þar í landi í síðasta mánuði eftir að hafa spilað tölvuleik í fimm sólarhringa nánast sleitulaust.

http://mbl.is/mm/frettir/erlent/2010/03/05/netfiklar_sveltu_barn_sitt_i_hel/

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband